Nú eru barnaguðsþjónusturnar í Seljakirkju á leið í sumarfrí og af því tilefni ætlum við að fagna liðnum sunnudagaskólavetri með pompi og prakt; með vorhátíð Seljakirkju!
Prestarnir leiða fjölskylduguðsþjónustu í helgidóminum ásamt Báru sunnudagaskólakennara, þar sem Tómas Guðni spilar á píanóið og barnakór Seljakirkju syngur undir stjórn Rósalindar Gísladóttur.
Eftir stundina verður boðið uppá grillaðar pylsur, hoppukastala og andlitsmálningu.
Komum og kveðjum liðinn vetur með stæl í Seljakirkju!
Ath. að vegna Vorhátíðarinnar verður engin hefðbundin guðsþjónsta kl. 13, en frá og með sunnudeginum 18. maí færast messurnar á sumartíma, og verða þá kl. 11.