Á síðasta ári var sr. Sigurður Már Hannesson ráðinn til þess að gegna embætti sóknarprests við Seljakirkju og sr. Steinunn Anna Baldvinsdóttir valin til þess að gegna embætti prests við Seljakirkju. Þó að prestarnir tveir hafi þegar þjónað um nokkurt skeið við kirkjuna, er löng hefð fyrir því að prestar séu formlega settir í embætti við hátíðlega athöfn, það er, innsetningarmessu. Og nú er loksins komið að því!
Þann 8. mars kl. 13 fer fram innsetningarmessa í Seljakirkju, þar sem sr. Bryndís Malla Elídóttir, prófastur, setur sr. Sigurð Má og sr. Steinunni Önnu í embætti presta Seljakirkju.
Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar, organista.
Eftir stundina verður boðið upp á veglegt kaffihlaðborð í tilefni dagsins.
Verið öll hjartanlega velkomin í Seljakirkju, á þessa hátíð í kirkjunni okkar!
