Uppstigningardagur hefur verið helgaður eldri borgurum í kirkjum landsins og þeim sérstaklega boðið til kirkju.
Guðsþjónusta verður í Seljakirkju kl. 14.
Sr. Valgeir Ástráðsson fyrrv. sóknarprestur í Seljakirkju predikar og þjónar ásamt sr. Ólafi Jóhanni Borgþórssyni.
Félagar úr Kór Seljakirkju leiða safnaðarsöng.
Organisti: Tómas Guðni Eggertsson.

Að guðsþjónustu lokinni verður boðið upp á veglegt kaffihlaðborð í boði Kvenfélags Seljasóknar og Soroptomistaklúbbs Bakka og Selja.