Helgihald sunnudagsins 13. október er með þessum hætti:

Barnaguðsþjónusta kl. 11 – Árni Þór og Bára leiða stundina og Tommi spilar á píanóið! Þrumustuð fyrir alla fjölskylduna!

Rangæingamessa kl. 13 – Næsti sunnudagur er hinn árlegi kirkjudagur Rangæingafélagsins. Sr. Árni Þór Þórsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar.

Rangæingafélagið býður upp á kaffiveitingar í safnaðarsalnum að guðsþjónustunni lokinni. Fjölmennum!

Verið öll hjartanlega velkomin til Seljakirkju!