Við fáum til okkar góða gesti í kirkjuna næsta sunnudag, þegar Breiðfirðingakórinn leiðir sönginn undir helgihaldinu!

Barnaguðsþjónusta kl. 11 – Siggi Már og Bára leiða stundina – segja sögu, syngja við gítarspil og skemmta sér saman!

Guðsþjónusta kl. 13 – Sr. Sigurður Már Hannesson prédikar og þjónar fyrir altari. Breiðfirðingakórinn leiðir safnaðarsöng og Helgi Hannesson sér um undirleik.

Gerum sunnudaginn skemmtilegri með helgihaldi Seljakirkju!