Helgihald sunnudagsins 16. mars verður með hefðbundnum hætti, en í þetta skiptið fáum við til okkar góðan prest sem gest! Helgihaldið verður með þessum hætti:
Barnaguðsþjónusta kl. 11, Bára og Jessica leiða stundina og Tommi spilar undir á píanóið. Saga, söngur, líf og fjör í góðu samfélagi í kirkjunni!
Guðsþjónusta kl. 13, sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju syngur undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar, organista.
Verið hjartanlega velkomin til Seljakirkju!