Næstkomandi sunnudag, þann 25. maí, ætlum við aftur að bregða eilítið út af vananum í helgihaldinu, og bjóðum til djassmessu. Þar mun djassinn spila veigamikinn þátt bæði í tónlistinni og prédikuninni! Getum við séð Guð sem djassleikara?

Djassmessa kl. 11 – Sr. Sigurður Már Hannesson prédikar og þjónar fyrir altari. Bjössi Thor og dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson spila ljúfa djasstónlist á gítar og saxófón. Kaffisopi og gott samfélag í safnaðarheimili eftir stundina.

Verið öll hjartanlega velkomin til Seljakirkju!