Nú ætlum við í Seljakirkju á nýjan leik að fagna Hvítasunnuhátíðinni með því að bjóða uppá skemmtiskokk Seljakirkju; þar sem við njótum góðs samfélags saman í helgidómnum, yfir útivistinni og síðast en ekki síst yfir ljúffengu vöfflukaffi!
Við hefjum stundina kl. 11 á léttri og skemmtilegri stund í helgidómnum og að henni lokinni höldum við út og skokkum stuttan hring um Seljadal og nágrenni Seljakirkju, hver á sínum hraða. Að þessu sinni bjóðum við upp á tvær göngu-/skokkleiðir, þar sem hver og einn getur fundið sitt tempó.
Að skokkinu loknu verður svo boðið uppá vöfflukaffi í safnaðarsal Seljakirkju.
Við vekjum athygli á því að barnavagnar og hundar eru sérstaklega velkomnir í kirkjuna á þessum hátíðardegi!
Einnig tökum við sérstaklega fram, að þau sem ekki treysta sér í skokkið/gönguna, eru að sjálfsögðu velkomin líka!
Verið öll hjartanlega velkomin til Seljakirkju!