Gönguguðsþjónusturnar í Breiðholti hafa fest sig í sessi á sumarmánuðum.
Að vanda verður gengið frá ákveðinni kirkju í Breiðholti kl. 10 og haldið til annarrar kirkju á samstarfssvæðinu. Að þessu sinni njótum við liðsinnis fararstjórans Ólafar Sigurðardóttur, sem áður hefur leitt örgöngur og göngur fyrir aldraða í Breiðholti, og kemur hún til með að fræða gönguhópinn um ýmislegt varðandi hverfin á meðan göngunni stendur. Göngurnar taka um 50 mínútur og gengið er á þægilegum hraða. Eftir gönguna verður messað á áfangastaðnum og í kjölfarið er boðið til samfélags yfir messukaffinu. Fyrir þau sem ekki vilja taka þátt í göngunni, er að sjálfsögðu velkomið að mæta beint í helgihaldið.
Að þessu sinni verða göngurnar fjórar:
Fyrsta gangan verður 15. júní, þegar gengið verður frá Seljakirkju til Breiðholtskirkju.
Þann 22. júní verður gengið frá Breiðholtskirkju til Fella- og Hólakirkju.
Hringnum verður svo lokað þann 29. júní þegar gengið verður frá Fella- og Hólakirkju til Seljakirkju.
Í síðustu gönguguðsþjónustu sumarsins, þann 6. júlí, verður gengið frá Seljakirkju til Fella- og Hólakirkju.
Komum og njótum góðs samfélags yfir útivist og helgihaldi með kirkjunum í Breiðholti! Allir velkomnir!