Næsta sunnudag fáum við til okkar góða gesti í Seljakirkju, en þá ætlar Breiðfirðingakórinn að leiða safnaðasönginn í guðsþjónustu sunnudagsins! Helgihald sunnudagsins 12. október verður með þessum hætti:
Barnaguðsþjónusta kl. 11, Siggi Már og Bára. Saga, söngur, líf og fjör í góðu samfélagi í kirkjunni!
Guðsþjónusta kl. 13, sr. Sigurður Már Hannesson prédikar og þjónar fyrir altari. Breiðfirðingakórinn syngur undir stjórn Kristínar R. Sigurðardóttur. Helgi Már Hannesson sér um undirleik.
Gerum sunnudaginn skemmtilegri og mætum í Seljakirkju!