Sunnudaginn 9. nóvember fáum við góða gesti í helgihaldið, sem verður þó með hefðbundnum hætti:

Barnaguðsþjónusta kl. 11 – Jóhanna Elísa og Jessica sjá um sunnudagaskólann, sem er gæðastund fyrir alla fjölskylduna með miklum söng og dansi, góðri sögu og þrumustuði!

Guðsþjónusta kl. 13 – Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng og organisti er Douglas A. Brotchie.

Verið hjartanlega velkomin til Seljakirkju!