Það verður stuð í Seljakirkju næsta sunnudag – eins og alla sunnudag 

Búninga sunnudagaskóli kl. 11

Frábær stund fyrir alla fjölskylduna.
Söngur, saga og bænir
Endilega mætið í grímubúningum

Brauð og ávextir í safnaðarsal að stund lokinni

Guðsþjónusta með altarisgöngu kl. 13

Sr. Steinunn Anna Baldvinsdóttir prédikar og þjónar
Kór Seljakirkju syngur undir stjórn Tómasar Guðna, organista

Messukaffi í safnaðarsal að guðsþjónustu lokinni

Verið hjartanlega velkomin í Seljakirkju