Þá líður að næstu menningarvöku eldri borgara í Seljakirkju – og nú stendur til að standa við þá dagskrá sem fyrirhuguð var á menningarvöku septembermánaðar, sem svo var felld niður vegna veðurs.

Til okkar koma hjónin Ísólfur Gylfi Pálmason og Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir, sem flytja okkur erindi í orðum og tónum.

Um tónlist sér Guðrún Gunnarsdóttir, sem syngur vel valin lög við undirleik Tómasar Guðna Eggertssonar.

Eftir stundina í kirkjunni verður boðið upp á þorramat í safnaðarheimili, en þátttaka í kvöldverði kostar kr. 4.000.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma kirkjunnar: 567 0110 eða með tölvupósti: seljakirkja@kirkjan.is.

Verið hjartanlega velkomin til Seljakirkju!