Helgihald sunnudagsins 1. mars verður með þessum hætti:
Íþrótta-sunnudagaskóli kl. 11 – Siggi Már og Íþrótta-Arnar leiða stundina. Skemmtileg stund í kirkjunni sem endar með þrautabraut og allskonar íþróttum í safnaðarsal!
Messa – Altarisganga kl. 13 – Sr. Sigurður Már Hannesson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar. Gengið verður til altaris.
Sameiginleg æskulýðsmessa í Breiðholti kl. 20 í Fella- og Hólakirkju – Séra Pétur Ragnhildarson leiðir stundina og Íris Rós sér um tónlistina. Létt og skemmtileg stund þar sem æskulýðurinn tekur virkan þátt.
Verið hjartanlega velkomin!
