Páskarnir eru höfuðhátíð kirkjunnar okkar. Þá minnumst við upprisu Frelsarans og sigur lífsins yfir dauðanum. Yfir daga dymbilvikunnar lifum við okkur inn í síðustu dagana fyrir máttarverkið mikla – og páskatíminn er einnig fermingartíminn í kirkjunni –  og því er nóg um að vera í kirkjunni okkar. Helgihald Seljakirkju yfir dymbilviku og páska verður með þessum hætti:

Pálmasunnudagur, 29 apríl:

  • Fermingarguðsþjónustur klukkan 10.30 og 13. Prestar Seljakirkju þjóna fyrir altari og fermingarbörn vetrarins ganga til altaris og staðfesta skírn sína. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar.
  • Barnaguðsþjónusta á kirkjuloftinu kl. 11. Vegna ferminganna verður sunnudagaskólinn uppi á kirkjuloftinu, með öllu tilheyrandi: söng, sögu og stuði. Bára sunnudagaskólakennari leiðir stundina ásamt öðrum.

Skírdagur, 2. apríl:

  • Fermingarguðsþjónustur klukkan 10.30 og 13. Prestar Seljakirkju þjóna fyrir altari og fermingarbörn vetrarins ganga til altaris og staðfesta skírn sína. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar.

Föstudagurinn langi, 3. apríl:

  • Guðsþjónusta kl. 11. Píslarsagan lesin og litanían sungin. Sr. Steinunn Anna Baldvinsdóttir prédikar. Að lokinni guðsþjónustuverður boðið upp á ljúffengafiskisúpu í safnaðarheimilinu.
  • Útvarpsguðsþjónustu frá föstudeginum langa, sem tekin var upp 26. mars í Seljakirkju, verður útvarpað á Rás 1 kl.11.

Páskadagur, 5. apríl:

  • Morgunguðsþjónusta kl. 8.  Sr. Sigurður Már Hannesson prédikar. Boðið verður upp á hátíðlegt morgunverðarhlaðborð að athöfn lokinni.
  • Páskastund barnanna kl. 11. Prestarnir leiða samveruna. Barnakórar Seljakirkju syngja undir stjórn Rósalindar Gísladóttur. Að lokinni stundinni í kirkjunni verður leitað að páskaeggjum á kirkjulóðinni.

Fátt er betra á þessum tíma ársins en að lifa sig inn í þessa merkustu sögu sem sögð hefur verið – og að gera það í góðu samfélagi í kirkjunni sinni. Verið hjartanlega velkomin til Seljakirkju yfir dymbilviku og páska!