Nú gengur kirkjan inn í annasamt tímabil páskanna, þar sem við göngum með Kristi að upprisunni sem við minnumst á sigurhátíð kirkjunnar, páskunum. Páskatímanum fylgja einnig fermingarnar, en fyrsta fermingarathöfnin fer fram næstkomandi sunnudag, á pálmasunnudag. Þá verður helgihald sunnudagsins með þessum hætti:
Pálmasunnudagur, 29. apríl:
Fermingarguðsþjónustur klukkan 10.30 og 13. Prestar Seljakirkju þjóna fyrir altari og fermingarbörn vetrarins ganga til altaris og staðfesta skírn sína. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar.
Barnaguðsþjónusta á kirkjuloftinu kl. 11. Vegna ferminganna verður sunnudagaskólinn uppi á kirkjuloftinu, með öllu tilheyrandi: söng, sögu og stuði. Bára sunnudagaskólakennari leiðir stundina ásamt öðrum.
Verið hjartanlega velkomin til Seljakirkju!
