Þá taka við gleðidagarnir í kirkjunni, þ.e. það tímabil kirkjuársins sem tekur við eftir páskadag. Í Seljakirkju halda fermingarmessurnar áfram, og setja þær svip sinn á næstkomandi sunnudag. Helgihald sunnudagsins verður með þessum hætti:

Fermingarmessur kl. 10.30 og 13 – Prestar Seljakirkju leiða stundina og kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar, organista. Gengið verður til altaris og fermingarbörn játast Jesú Kristi.

Barnaguðsþjónusta kl 11 – Sunnudagaskólinn verður á sínum venjulega tíma í loftsal kirkjunnar. Bára og Ásgeir leiða stund með söng, sögu og miklu stuði.

Verið öll hjartanlega velkomin!