Næstkomandi sunnudag verður helgihaldið í Seljakirkju með venjubundnum hætti, þar sem sunnudagaskólinn verður á sínum stað klukkan 11 og messa með altarisgöngu klukkan 13. Eftir sunnudagsmessuna fer fram aðalsafnaðarfundur Seljasóknar í safnaðarheimili.
Barnaguðsþjónusta kl. 11 – Siggi Már og Bára leiða stundina með söng, sögu og stuði. Dásamleg stund fyrir alla fjölskylduna!
Messa – altarisganga kl. 13 – Sr. Sigurður Már Hannesson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju syngur undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar. Gengið verður til altaris.
Aðalsafnaðarfundur að helgihaldi loknu – Aðalsafnaðarfundur Seljasóknar fer fram að lokinni messu sem hefst klukkan 13.
Dagskrá fundarins: Venjuleg fundarstörf, kosningar til trúnaðarstarfa og önnur mál.
Íbúar í Seljasókn, sem náð hafa 16 ára aldri og skráðir eru í Þjóðkirkjuna, hafa atkvæðisrétt á fundinum.
Verið öll hjartanlega velkomin til Seljakirkju!
