Síðustu árin höfum við í Seljakirkju boðið upp á Skemmtiskokk fjölskyldunnar á Hvítasunnunni. Viðburðurinn hefur vakið mikla lukku og því ætlum við að endurtaka leikinn næstkomandi sunnudag – Hvítasunnudag 24. maí.

Við hefjum stundina á léttri og skemmtilegri stund í helgidómnum kl. 11. Að henni lokinni höldum við út og skokkum stuttan hring um Seljadal og nágrenni Seljakirkju, hver á sínum hraða. Boðið verður upp á tvær hlaupa-/gönguleiðir. Að skokkinu loknu verður svo boðið uppá vöfflukaffi í safnaðarsal Seljakirkju.
Við vekjum athygli á því að barnavagnar og hundar eru sérstaklega velkomnir í kirkjuna á þessum hátíðardegi!

Einnig tökum við sérstaklega fram, að þau sem ekki treysta sér í skokkið/gönguna, eru að sjálfsögðu velkomin líka.

Vertu velkominn í Seljakirkju á Hvítasunnu!