Við höldum okkur við áralangahefð í Breiholti og hefjum nú göngumessurnar okkar.

Gangan hefst þá kl. 10 í einni kirkju, gengið er til annarar þar sem guðsþjónusta hefst kl. 11

Sunnudagana 7. 14. og 21. júní fáum við leiðsögn frá Ólöfu Sigurðardóttur, leiðsögumanni hjá Ferðafélagi Íslands.

Dagskrá er svohljóðandi:

7. júní gengið frá Seljakirkju til Fella- og Hólakirkju

14. júní gengið frá Fella- og Hólakirkju til Breiðholtskirkju

21. júní gengið frá Breiðholtskirkju til Seljakirkju

28. júní gengið frá Seljakirkju til Fella- og Hólakirkju

5. júlí gengið frá Fella- og Hólakirkju til Seljakirkju

Að guðsþjónustum loknum verður boðið til veglegs messukaffis í safnaðarsölum kirknanna

Við vekjum athygli á að auðvitað er hægt að koma í guðsþjónusturnar og sleppa göngunum

Verið öll hjartanlega velkomin