Þá halda göngumessurnar áfram í Breiðholti, en að þessu sinni er röðin loksins komin að Seljakirkju!
Gengið verður af stað frá Breiðholtskirkju kl. 10 og er ferðinni heitið til Seljakirkju, þar sem messað verður kl. 11.
Við gönguna njótum við leiðsagnar Ólafar Sigurðardóttur, leiðsögumanns frá Ferðafélagi Íslands, sem leiðir gönguna og fræðir göngugarpa um Breiðholtið með skemmtilegum og fróðlegum sögum.
Guðsþjónustu leiðir séra Árni Þór Þórsson og kór Seljakirkju syngur.
Verið öll hjartanlega velkomin í gönguguðsþjónustu – sama hvort tekið sé þátt í göngunni eða ekki!
