Nú er haustið að ganga í garð og því fylgir að sunnudagaskólinn hefst á ný í Seljakirkju! Með tilkomu sunnudagaskólans færist helgihaldið okkar því aftur yfir á vetrartíma, og hefjast guðsþjónustur því á ný klukkan 13.00. Helgihald sunnudagsins 13. september verður með þessum hætti:

Barnaguðsþjónusta kl. 11 – Siggi Már og Bára leiða fyrsta sunnudagaskóla vetrarins með öllu tilheyrandi: söng, sögu, stuði og brúðuleikhúsi. Þrumustuð fyrir alla fjölskylduna!

Guðsþjónusta kl. 13 – Sr. Sigurður Már Hannesson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Douglas A. Brotchie.

Nú er ráð að byrja haustið með krafti – og njóta sunnudaganna í Seljakirkju!