Nú er fermingarfræðslan komin á fullt og von er á mörgum nýjum andlitum í kirkjunni næstkomandi sunnudag. Við biðjum messugesti því um að taka sérstaklega vel á móti nýjum fermingarbörnunum. Helgihald sunnudagsins 27. september verður með hefðbundnum hætti:
Barnaguðsþjónusta kl. 11 – Siggi Már og Bára leiða sunnudagaskólann með söng, sögu, lífi og fjöri í góðu samfélagi í kirkjunni!
Messa – altarisganga kl. 13 – sr. Sigurður Már Hannesson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju syngur undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar, organista. Gengið verður til altaris.
Njótum sunnudagsins með Seljakirkju!
