Þá er komið að fyrstu menningarvöku eldri borgara í Seljakirkju á nýjum vetri. Menningarvöku eldri borgara fara fram síðasta þriðjudag hvers mánaðar, en menningarvaka septembermánaðar verður haldin þann 29. september kl. 18.00.

Þjóðbúningafélag Íslands sér um dagskrá, en góðir gestir félagsins ætla að koma og fræða kirkjugesti um sögu og hönnun íslenska þjóðbúningsins, og samhliða því verður boðið upp á „tískusýningu“ á hinum ýmsu tegundum þjóðbúningsins.

Tómas Guðni Eggertsson spilar tónlist og leiðir kirkjugesti í samsöng.

Eftir dagskrá í kirkjuskipinu verður boðið til kvöldmáltíðar í safnaðarheimili. Kvöldmáltíðin kostar 4.500 kr. Matseðillinn verður með þessum hætti:

Aðalréttur: BBQ Grísahnakki með sætum kartöflum, gljáðu grænmeti og rauðrófusalati. Borðið fram með sveppasósu.

Eftirréttur: Súkkulaðifrauð með jarðaberjasósu.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma kirkjunnar: 567 0110 eða með tölvupósti: seljakirkja@kirkjan.is.

Verið hjartanlega velkomin til Seljakirkju!