Næsta sunnudag verður að vanda nóg um að vera í Seljakirkju, en næsti sunnudagur er kirkjudagur Rangæinga í Seljakirkju! Löng hefð er fyrir því að Rangæingafélagið komi að árlegri messu í Seljakirkju, þar sem Rangæingar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Helgihald sunnudagsins 25. október verður með þessum hætti:
Íþrótta-sunnudagaskóli kl. 11 – Siggi Már og Íþrótta-Arnar leiða skemmtilega stund í helgidómnum með söng, sögu og öllu tilheyrandi. Eftir stundina í helgidómnum færum við okkur svo yfir í safnaðarheimilið, þar sem tekur á móti börnunum þrautabraut og allskonar leikir og íþróttir.
Rangæingamessa kl. 13 – Séra Halldór Gunnarsson, fyrrverandi sóknarprestur í Holti undir Eyjafjöllum, prédikar og séra Sigurður Már Hannesson þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju syngur undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar. Gengið verður til altaris. Rangæingafélagið býður kirkjugestum upp á kaffi og kruðerí að stundinni lokinni. Allir velkomnir!
Það er ljúft að verja Drottins degi í Seljakirkju!
