Þá er komið að síðustu Menningarvöku ársins í Seljakirkju, sem að venju verður með jólalegum blæ – og dagskráin er ekki af verri endanum!
Karl Ágúst Úlfsson flytur okkur erindi á léttu nótunum, les fyrir okkur úr bókinni sinni og segir sögur af árum sínum í Spaugstofunni.
Sigga Beinteins og Grétar Örvars halda svo uppi stuðinu eins og þeim einum er lagið og syngja fyrir okkur ljúfa tóna.
Eftir stundina í helgidóminum er kirkjugestum boðið að þiggja jólahátíðarkvöldverð að hætti Bjarna Kokks í safnaðarheimili.
Kvöldverður kostar kr. 5.000.
Vinsamlegast tilkynnið þáttöku í síma kirkjunnar: 567 0110 eða með tölvupósti: seljakirkja@kirkjan.is
Láttu þér líða vel með Seljakirkju!
