Söngvasel
Nýjung í safnaðarstarfi
Í Söngvaseli er áhersla lögð á kórasöng, framkomu, samhljóm, sjálfstraust og raddþjálfun.
Allir í 3. – 6. bekk velkomnir
Sviðs- og dansívaf verður blandað saman við kóræfingar og starfið þannig gert spennandi og skemmtilegt.
Æfingar verða alla fimmtudaga kl. 15:00 – 16:00
Farið verður í æfingabúðir 12.-14. febrúar 2027
Umsjón með starfinu hefur Íris Rós, kórstjóri
Kirkjukórinn
Æfir á þriðjudögum 19:30-21:30
Kirkjukórinn er undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar. Kórinn æfir á þriðjudagskvöldum kl. 19:30 – 21:30. Einnig er gert ráð fyrir 1 klst. æfingu fyrir athafnir. Kórinn getur bætt við sig áhugsömu söngfólki og hægt er að hafa samband við Tómas í síma 866-1823 fyrir frekari upplýsingar.
Kórinn hefur það hlutverk að leiða almennan safnaðarsöng í guðsþjónustum og jafnframt það að flytja umfangsmeiri tónverk fyrir söfnuðinn til þess að setja hátíðlegri blæ á hana. Gert er ráð fyrir því að kórinn haldi að minnsta kosti tvenna tónleika á ári, aðventu og vortóneikar.