Það var gleðirík stund hjá okkur í Seljakirkju síðastliðinn sunnudag, þegar sr. Steinunn Anna Baldvinsdóttir var formlega sett inn í embætti æskulýðsprests við hátíðlega athöfn í helgidómnum. Sr. Bryndís Malla Elídóttir, prófastur í Reykjavíkurprófastsdæmi Eystra sá um innsetninguna og sr. Steinunn Anna prédikaði. Sr. Sigurður Már og sr. Árni Þór þjónuðu fyrir altari.

Við erum sannarlega heppin að hafa hana sr. Steinunni Önnu þjónandi við kirkjuna okkar – og bjóðum hana nú formlega velkomna til þjónustunnar!