Miðvikudaginn 25. september förum við af stað með nýtt safnaðarstarf

Gormatími verður frá 17:00-19:00

Við byrjum á léttri fjölskyldusamveru í kirkjusalnum þar sem við heyrum sögu úr biblíunni, synjgum saman og förum með bænir

Að því loknu verður föndurstund – þar verður boðið uppá bátagerð í ýmsum útfærslum sem henta börnum á öllum aldri

Við endum síðan á því að eiga saman samfélag og borða kvöldmat í safnaðarsalnum – að þessu sinni verður boðið uppá hakk og spaghetti

Allir velkomnir – kostar ekkert

Skráning hér

Við vonumst til að sjá sem flesta – njótum þess að koma saman fjölskyldan, eiga ljúfa stund saman og sleppa því að elda