Þriðja gönguguðsþjónusta sumarsins verður næsta sunnudag, þann 29. júní, og að þessu sinni verður messað í kirkjunni okkar, Seljakirkju!
Gengið verður frá Fella- og Hólakirkju kl. 10 ferðinni heitið til Seljakirkju.
Aftur njótum við leiðsagnar fararstjórans Ólafar Sigurðardóttur, sem ætlar að fræða mannskapinn um Breiðholtið.
Guðsþjónustan hefst kl. 11, en þar prédikar sr. Sigurður Már Hannesson og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng og Tómas Guðni Eggertsson leikur á orgel. Boðið verður upp á kaffihlaðborð að athöfn lokinni.
Verið hjartanlega velkomin!