Gott er að byrja Drottins dag í Seljakirkju! Helgihald sunnudagsins 1. febrúar verður með þessum hætti:

Barnaguðsþjónusta kl. 11 – Siggi Már og Bára leiða stund með söng, sögu og miklu fjöri, og Tommi spilar á píanóið.

Guðsþjónusta kl. 13 – Sr. Sigurður Már Hannesson prédikar og þjónar fyrir altari og kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar, organista.

Verið velkomin í Seljakirkju!