Þá líður að næstu menningarvöku eldri borgara í Seljakirkju, en boðið verður uppá spennandi dagskrá þann 24. mars næstkomandi.
Athugið: að þessu sinni verður menningarvakan ekki síðasta þriðjudag mánaðarins, líkt og venjulega, vegna dymbilvikunnar, og verður henni því flýtt um eina viku.
Að þessu sinni kemur til okkar sellóleikarinn, spekingurinn og rithöfundurinn Gunnar Kvaran, en Gunnar er án efa einn af okkar frægustu og fremstu klassísku tónlistarmönnum. Gunnar flytur erindi sitt í orðum og tónum, en við tónlistarflutninginn nýtur hann liðsinnis Tómasar Guðna Eggertssonar, organistans okkar.
Eftir stundina verður boðið til kvöldverðar í safnaðarheimili, þar sem Bjarni Kokkur eldar ofan í mannskapinn. Matseðillinn verður með þessum hætti: Steiktar kótelettur með nýuppteknu ensku kartöflusmælki, rauðkáli og baunum. Eplakaka með rjóma í eftirrétt. Kvöldverður kostar kr. 4.000.
Verið öll hjartanlega velkomin á þennan spennandi viðburð í kirkjunni okkar!
