Þá er komið að því að barnaguðsþjónusturnar fari í sumarleyfi, en að vanda ætlum við að fagna liðnum vetri í sunnudagaskólanum með vorhátíð Seljakirkju kl. 11, þann 10. maí nk. Athugið að vegna vorhátíðarinnar verður engin hefðbundin messa kl. 13.
Vorhátíð Seljakirkju kl. 11 – Prestarnir og Bára leiða skemmtilega fjölskylduguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna og Tommi spilar á píanóið. Barnakór Seljakirkju syngur undir stjórn Rósalindar Gísladóttur. Eftir stundina í helgidómnum verður boðið uppá grillaðar pulsur og hoppukastala.
Líkt og áður sagði fer sunnudagaskólinn í sumarleyfi eftir sunnudaginn 10. maí, og færist hefðbundinn messutími því yfir til klukkan 11. Yfir sumartímann verða guðsþjónustur í Seljakirkju því kl. 11, nema annað sé auglýst og hefst sunnudagaskólinn svo á ný í september.
Verið öll hjartanlega velkomin á vorhátíð Seljakirkju!
