Nú er haustið komið og vetrardagskrá Seljakirkju að fara af stað.
Seljakirkja heldur úti fjölbreyttu og öflugu safnaðarstarfi fyrir allan aldur.
Vegna raunlækkunar á sóknargjöldum síðustu ár er æ erfiðara fyrir kirkjur að standa undir safnaðarstarfi.
Við í Seljakirkju leitum því að Vildarvinum.
Hægt er að skrá sig í hóp mánaðarlegra styrktaraðila Seljakirkju.
Upphæð styrkjanna er valfrjáls og hægt er að segja upp styrknum á hvaða tíma sem er.
Það munar um hverja krónu og renna öll framlög sem safnast með mánaðarlegum styrkjum beint í safnaðarstarf Seljakirkju.
Sem dæmi fer þessi peningur beint í:
Barnastarf fyrir allan aldur
Unglingastarfið
Gormatímann
Sunnudagaskólann
Bænastundir
Menningarvöku eldri borgara
og margt, margt fleira
Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við seljakirkja@kirkjan.is
