Það verður óvenju mikið um að vera í Seljakirkju sunnudaginn 4. október

Barnaguðsþjónusta kl. 11 – Bangsablessun

Steinun og Bára sjá um stundina.
Söngur, saga og gleði.
Allir bangsar, dúkkur og tuskudýr eru velkomin að fá blessun.
Hressing og myndir að lita að stund lokinni.

Guðsþjónusta kl. 13

Sr. Steinunn Anna prédikar og þjónar.
Kór Seljakirkju syngur undir stjórn Tómasar Guðna, organista.

Pop up Kaffihús kl. 14

Sóroptimistaklúbbur Bakka og Selja setur upp kaffihús í safnaðarsal.
Allur ágóði rennur til bókasafna Breiðholtsskóla, Seljaskóla og Ölduselsskóla

Prjónamessa kl. 18

Sr. Steinunn Anna prédikar og þjónar.
Kvennakórinn Seljur syngja undir stjórn Svövu Ingólfsdóttur.

Að messu lokinni verða Natura Knitting, Today I feel yarn og Hex Hex dye works með sölubása í safnaðarsal. 

Þá stendur Seljakirkja fyrir veitingasölu þar sem súpa, brauð, kaffi og meðlæti verða til sölu
Allur ágóði sölunnar rennur í styrktarsjóð Seljakirkju – Hjálparhönd Seljakirkju

Verið öll hjartanlega velkomin í Seljakirkju