Það er ljúft að verja sunnudeginum í góðu samfélagi í Seljakirkju. Helgihald sunnudagsins 11. október verður með þessum hætti:
Hljóðfærasunnudagaskóli kl. 11 – Siggi Már og Bára leiða skemmtilega stund í kirkjunni með sögu, söng og mikilli tónlist. Börnin eru sérstaklega hvött til þess að koma með einföld hljóðfæri í stundina.
Guðsþjónusta kl. 13 – Sr. Sigurður Már Hannesson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar.
Verið hjartanlega velkomin til Seljakirkju!
