Þá líður senn að næstu menningarvöku hér í Seljakirkju og að vanda fáum við til okkar góða gesti þriðjudaginn 27. október næstkomandi.

Dagskrá hefst í helgidómnum kl. 18. Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi Alþingismaður, flytur okkur erindi og Sálmabandið leikur tónlist fyrir kirkjugesti. Sálmaband Dómkirkjunnar er skipað kórfélögum Dómkórsins í Reykjavík: Ása Bríem, harmonikka, Jón Ívars, gítar, Sigmundur Sigurðarson, gítar, Thelma Rós Sigfúsdóttir, víóla og Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur Dómkirkjunnar leikur á kontrabassa. Hafa þau sérhæft sig í því að gamla og rótgróna sálma ferskum tónblæ með skemmtilegri hljóðfæraskipan og kynningum.

Eftir stundina býðst kirkjugestum að þiggja kvöldverð í safnaðarheimili, en að þessu sinni eldar Bjarni kokkur fyrir okkur lambalæri með öllu tilheyrandi. Kvöldverður kostar kr. 4.000.

Verið öll hjartanlega velkomin á menningarvöku eldri borgara í Seljakirkju!