Helgihald sunnudagsins 8. nóvember verður með hefðbundnum hætti:

Barnaguðsþjónusta kl. 11 – Siggi Már og Bára leiða skemmtilega stund í helgidómnum með söng, sögu og miklu stuði. Við heyrum söguna um Sakkeus, hittum Rebba og fáum límmiða í sunnudagaskólabókina okkar! Skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna.

Guðsþjónusta kl. 13 – Sr. Sigurður Már Hannesson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju syngur undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar, organista.

Verið öll hjartanlega velkomin til Seljakirkju!