Sunnudagurinn 29. nóvember er fyrsti sunnudagur í aðventu.
Þá er venju samkvæmt nóg um að vera í Seljakirkju.

Barnaguðsþjónusta kl. 11
Hress og skemmtileg stund, með sögu, söngvum og nærandi samveru.
Kveikt verður á fyrsta kertinu á aðventukransinum, Spádómskertinu.
Allir fá nýjan límmiða og mynd að lita.
Boðið verður uppá piparkökur og mandarínur.

Guðsþjónusta kl. 13
Sr. Steinunn Anna prédikar og þjónar.
Gengið verður til altaris.
Kór Seljakirkju syngur undir stjórn Tómasar Guðna, organista.
Messukaffi í safnaðarsal að stund lokinni.

Aðventuhátíð kl. 17
Ljúf stund fyrir alla fjölskylduna.
Krakkarnir úr Söngvaseli syngja jólalög.
Kirkjukór Seljakirkju syngur.
Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri flytur hugvekju.
Aðventuljós verða tendruð í myrkvaðri kirkjunni.
Heitt súkkulaði og smákökur í safnaðarsal að stund lokinni.

Verið öll hjartanlega velkomin í Seljakirkju og fagnið aðventunni með okkur