Ritningarvers

Hér eru nokkrar tilllögur að ritningarversum sem hægt er að velja fyrir fermingu.

Nýja testamentið

  • Sælir eru fátækir í anda því að þeirra er himnaríki. Mt. 5.3
  • Sælir eru hógværir því að þeir munu jörðina erfa. Mt. 5.5
  • Sælir eru þeir sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu því að þeir munu saddir verða. Mt 5.6
  • Sælir eru miskunnsamir því að þeim mun miskunnað verða. Mt. 5.7
  • Sælir eru hjartahreinir því að þeir munu Guð sjá. Mt. 5.8
  • Sælir eru friðflytjendur því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða. Mt. 5.9
  • Faðir yðar veit hvers þér þurfið áður en þér biðjið hann. Mt. 6.8
  • Biðjið, og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. Mt. 7.7
  • Allt sem þið viljið að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera. Mt. 7.12
  • Jesús sagði: Komið til mín, öll þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðin, og ég mun veita yður hvíld. Mt. 11.2
  • Símon Pétur svarar: Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs. Mt. 16.16
  • Jesús sagði:  Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar. Mt. 28.20
  • Jesús sagði: Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi því að slíkra er himnaríki. Mt. 19.14
  • Sá mesti meðal yðar sé þjónn yðar. Mt. 23.11
  • Hver sem upp hefur sjálfan sig mun auðmýktur verða, en sá sem lítillækkar sjálfan sig mun upp hafinn verða. Mt. 23.12
  • Hver sem tekur við einu slíku barni í mínu nafni tekur við mér, og hver sem tekur við mér tekur ekki aðeins við mér heldur og við þeim er sendi mig. Mk. 9.37
  • Guði er enginn hlutur um megn. Lk. 1.37
  • Jesús sagði: Verið miskunnsöm eins og faðir yðar er miskunnsamur. Lk. 6.36
  • Jesús sagði: Hver sem vill fylgja mér afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér. Lk. 9.23
  • Jesús sagði: Hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera. Lk. 12.34
  • Jesús sagði: Það sem mönnum er um megn, það megnar Guð. Lk. 18.27
  • Jesús sagði: Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri heldur hafa ljós lífsins. Jh. 8.12
  • Jesús sagði: Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina. Jh. 10.11
  • Jesús sagði:  Ég er góði hirðirinn.  Ég þekki mína og mínir þekkja mig. Jh. 10.14
  • Jesús sagði: Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. Jh. 11.25
  • Jesús sagði: Trúið á ljósið meðan þér hafið ljósið svo að þér verðið börn ljóssins. Jh. 12.36
  • Jesús sagði:  Sá sem varðveitir mitt orð, skal aldrei að eilífu deyja. Jh. 8.51
  • Jesús sagði: Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins nema fyrir mig. Jh. 14.6
  • Jesús sagði: Ef þér elskið mig, munuð þér halda boðorð mín. Jh. 14.15
  • Jesús sagði: Ég lifi og þér munuð lifa. Jh. 14.19
  • Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum mætti þínum og öllum huga þínum og þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.  Lk. 10.27
  • Jesús sagði.  Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra það hafið þér gert mér.  Mt. 25.40
  • Jesús sagði: Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður. Jh. 15.12
  • Jesús sagði: Þér eruð vinir mínir ef þér gerið það sem ég býð yður. Jh. 15.14
  • Jesús sagði:  Frið læt ég yður eftir minn frið gef ég yður. Jh. 14.27
  • Í upphafi var orðið og orðið var hjá Guði og orðið var Guð. Jh. 1.1
  • Sjá Guðs lamb, sem ber synd heimsins. Jh. 1.29
  • En þeir sögðu: Trú þú á Drottin Jesú og þú munt verða hólpinn og heimili þitt. Post. 16.31
  • Sælla er að gefa, en þiggja. Post. 20.35
  • Við vitum að þeim sem Guð elska samverkar allt til góðs, þeim sem hann hefur kallað samkvæmt ákvörðun sinni. Róm. 8.28
  • Elskan sé flærðarlaus. Hafið andstyggð á hinu vonda en haldið fast við hið góða. Róm. 12.9
  • Verið ekki hálfvolg í áhuganum, verið brennandi í andanum. Þjónið Drottni. Róm. 12.11
  • Verið glöð í voninni, þolinmóð í þjáningunni, staðföst í bæninni. Róm. 12.12
  • Fagnið með fagnendum, grátið með grátendum. Róm. 12.15.
  • Gjaldið engum illt fyrir illt. Róm. 12.17
  • Guð vonarinnar fylli yður öllum fögnuði og friði í trúnni svo að þér séuð auðug að voninni í krafti heilags anda. Róm 15.13
  • En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur. 1.Kor. 13.13
  • Drottinn er andinn og þar sem andi Drottins er, þar er frelsi. 2.Kor. 3.17.
  • Með því að trúa á Krist Jesú eruð þið öll Guðs börn. Gal. 3.26
  • Berið hvert annars byrðar og uppfyllið þannig lögmál Krists. Gal. 6.2
  • Þreytumst ekki að gera það sem gott er því að á sínum tíma munum við uppskera ef við gefumst ekki upp. Gal. 6.9
  • Verið með sama hugarfari sem Kristur Jesús var. Fil. 2.5
  • Verið ávallt glöð í Drottni. Ég segi aftur: Verið glöð. Fil. 4.4.
  • Ljúflyndi ykkar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd. Fil. 4.5
  • Allt megna ég fyrir hjálp hans sem mig styrkan gerir. Fil. 4.13
  • Þið hafið tekið á móti Kristi, Drottni Jesú. Lifið því í honum. Kól. 2.6
  • Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir. Heb. 13.8
  • Ef við játum syndir okkar þá er hann trúr og réttlátur svo að hann fyrirgefur okkur syndirnar og hreinsar okkur af öllu ranglæti. 1.Jóh. 1.9
  • Sá sem ekki elskar þekkir ekki Guð því að Guð er kærleikur. 1.Jóh. 4.8
  • Vertu trúr/trú allt til dauða og Guð mun gefa þér kórónu lífsins.  Ob. 2:10
  • Ég er Alfa og Omega, upphafið og endirinn.  Ob. 21.6
  • Kröftug bæn réttláts manns megnar mikið.  Jk. 5:16
  • Lát engan líta smáum augum á æsku þína en ver fyrirmynd trúaða, í orði, í hegðun, í kærleika, í trú, í hreinleika.  I. Tim. 4:13
  • Vanræktu ekki náðargjöfina þína.  I. Tim. 4:14
  • Verið staðföst í bæninni.  Vakið og biðjið með þakkargjörð. Kól. 4:2

Gamla testamentið

  • Í upphafi skapaði Guð himin og jörð. 1. Mós. 1.1.
  • Heiðra skaltu föður þinn og móður. 2. Mós. 20.12
  • En þú, Drottinn, ert skjöldur minn, sæmd mín og lætur mig bera höfuðið hátt. Sl. 3.4
  • Ég vil þakka þér, Drottinn, af öllu hjarta, kunngjöra öll máttarverk þín. Sl. 9.2
  • Þeir sem þekkja nafn þitt treysta þér því að þú, Drottinn, bregst ekki þeim sem til þín leita. Sl. 9.11
  • Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. Sl. 16.1
  • Varðveit mig sem sjáaldur augans, fel mig í skugga vængja þinna. Sl. 17.8
  • Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er hreint, skjöldur er hann öllum þeim sem leita hælis hjá honum. Sl. 18.31.
  • Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Sl. 23.1
  • Þótt ég fari um dimman dal óttast ég ekkert illt því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Sl. 23.4
  • Vísa mér vegu þína, Drottinn, kenn mér stigu þína. Sl. 25.4
  • Í þínar hendur fel ég anda minn, þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð. Sl 31.6
  • Engill Drottins setur vörð kringum þá sem óttast hann og frelsar þá. Sl. 34.8
  • Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá. Sl. 37.5
  • Eins og hindin þráir vatnslindir þráir sál mín þig ó Guð.  Sl. 42.2
  • Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. Sl. 46.2
  • Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda. Sl. 51.12
  • Þú ert kraftur minn, þér fel ég mig því að Guð er vígi mitt. Sl. 59.10
  • Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég gangi í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt. Sl. 86.11
  • Því að þín vegna býður hann út englum sínum til þess að gæta þín á öllum vegum þínum. Sl. 91.11
  • Því að Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns. Sl. 100.5
  • Hann fyrirgefur allar misgjörðir þínar, læknar öll þín mein. Sl 103.3
  • Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum? Með því að gefa gaum að orði þínu. Sl. 119.9
  • Ég leita þín af öllu hjarta, lát mig eigi villast frá boðum þínum. Sl. 119.10
  • Drottinn er hlutskipti mitt, ég hef ákveðið að halda boð þín. Sl. 119.57
  • Orð þitt, Drottinn, varir að eilífu, það stendur stöðugt á himnum. Sl. 119.89
  • Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum. Sl. 119.105
  • Ég hef augu mín til fjallanna.  Hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Sl. 121.2
  • Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar. Sl. 121.5
  • Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína. Sl. 121.7
  • Drottinn, vertu góðum góður og þeim sem hjartahreinir eru. Sl. 125.4
  • Kenn mér að gera vilja þinn, því að þú ert Guð minn, þinn góði andi leiði mig um slétta braut. Sl. 143.10
  • Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur. Sl. 145.8
  • Drottinn er réttlátur á öllum vegum sínum og miskunnsamur í öllum verkum sínum. Sl. 145.17
  • Drottinn styður alla þá sem ætla að hníga og reisir upp alla niðurbeygða. Sl. 145.14
  • Gott mannorð er dýrmætara en mikill auður, vinsældir eru betri en silfur og gull. Ok. 22.1
  • Hann veitir kraft hinum þreytta og þróttlausum eykur hann mátt. Jes. 40.29
  • Því að ég, Drottinn, er Guð þinn, ég held í hægri hönd þína og segi við þig: Óttast eigi, ég bjarga þér. Jes. 41.13
  • Leitið Drottins meðan hann er að finna, ákallið hann meðan hann er nálægur. Jes. 55.6
  • Ég hef rist þig í lófa mér.  Jes. 49.16
  • Því að ég þekki sjálfur þær fyrirætlanir sem ég hefi í hyggju með yður, segir Drottinn, fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð. Jer. 29.11