Sumarnámskeið Seljakirkju

Þrjú námskeið fyrir börn í 1.-4. bekk

Dagskrá námskeiðsins er af fjölbreyttum toga, þar sem leitast er við að allir fái notið sín í öruggu umhverfi.

Farið verður í vettvangsferðir, vatnsleiki, bakstur, inni- og útileiki svo eitthvað sé nefnt. Einnig verða sagðar sögur úr Biblíunni, kenndar bænir og sungin skemmtileg lög.

Námskeið 1 og 2 kosta 17.500 kr. (4 dagar)
námskeið 3 kostar 15.500 kr. (5 dagar)

Innifalið í verði er öll dagskrá og ferðir á námskeiðinu.
Börnin koma með eigið nesti. Miðað er við 3 nestisstundir yfir daginn – ávextir verða þó í boði í morgunnestinu fyrir þá sem vilja.
Á föstudögum verður boðið upp á grillpartý og köku í kaffitímanum, svo ekki þarf að koma með nesti þann daginn.

Umsjón með námskeiðinu hefur sr. Steinunn Anna Baldvinsdóttir, prestur, sem gefur allar nánari upplýsingar á steinunnanna@kirkjan.is

Til að skrá barn á sumarnámskeið í Seljakirkju skal smella á hnappinn hér að neðan:

Námskeið 2025

  1. námskeið 9.-13. júní (ath. 4 dagar)
  2. námskeið 16.-20. júní (ath. 4 dagar)
  3. námskeið 18.-22. ágúst

Námskeiðið er á milli  09:00 og 15:30.

Húsið er opið 08:45 – 15:45 og er velkomið að nýta þann tíma hjá okkur.