Sr. Sigurður Már Hannesson
Sóknarprestur
Netfang: sigurdurmh@kirkjan.is
Sigurður Már Hannesson er fæddur 1990 og uppalinn í Reykjavík.
Hann lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands árið 2010, stundaði nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands en leiðin lá svo í guðfræðideildina.
Árið 2016 stundaði sr. Sigurður Már skiptinám þar sem hann nam guðfræði við Kaupmannahafnarháskóla.
Sr. Sigurður Már útskrifaðist með mag. theol.-próf frá Háskóla Íslands vorið 2020.
Hann var vígður til prestsþjónustu hjá Kristilegu skólahreyfingunni í mars 2021. Jafnframt sinnti hann ýmsum verkefnum fyrir KFUM og KFUK.
Sr. Sigurður Már hefur starfað í sunnudagaskóla hjá Grensáskirkju og Dómkirkjunni í Reykjavík ásamt því að hafa starfað sem æskulýðsfulltrúi í Ástjarnarkirkju. Samhliða starfi sínu hjá Kristilegu skólahreyfingunni sinnti hann afleysingum í Laugardalsprestakalli síðastliðið vor.
Sumarið 2022 var sr. Sigurður Már valinn af valnefnd Seljasóknar til að þjóna við Seljaprestakall, og í upphafi árs 2025 var hann ráðinn til að gegna embætti sóknarprests við kirkjuna, eftir að sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson sagði starfi sínu lausu.
Eiginkona sr. Sigurðar Más er Heiðdís Haukdal Reynisdóttir, verkefnastjóri í rafrænum kennslumálum hjá Háskóla Íslands. Þau eiga eina dóttur.